Færsluflokkur: Hausatalningar
27.11.2008 | 10:39
Þolinmæði ASÍ
Í kynjabókhaldi ASÍ 2008 segir:
...þarf sú verkalýðshreyfing, sem býður ungt fólk velkomið í sínar raðir, að endurspegla möguleika beggja kynja til þátttöku og áhrifa. Í nýlegri viðhorfskönnun sem gerð var fyrir ASÍ meðal ungs fólks komu fram skýr skilaboð um að ungt fólk telji að jafnréttismál eigi að vera ofarlega á baugi hjá verkalýðhreyfingunni. Lagalegt jafnrétti fæst með lögum en raunverulegt jafnrétti verður ekki til nema með viðhorfsbreytingu. Breytingarnar fela í sér tækifæri til úrbóta. Því er mikilvægt að gera kynjasjónarmiðið eitt af leiðarljósum við mótun atvinnustefnu framtíðarinnar.
Nú er þolinmæði ASÍ á þrotum. Ekki vegna þess að konum er jafn markvisst haldið utan við stefnumótun og ákvarðanatöku nú sem endranær í samfélaginu. Ekki vegna þess að karllægu gildin sem komu okkur í vandræðin eiga áfram að vísa okkur veginn. Ekki vegna þess að handahófskenndar og áhættumiðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar snúast ekki um fólkið í landinu, heldur bókhald Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Nei. ASÍ krefst þess að tveir ráðherrar og einn seðlabankastjóri víkji.
Og þá er sko eins gott að halda útifund með framsögu þriggja miðaldra, hvítra karla. Skítt með kynjabókhaldið. Skítt með unga fólkið. Skítt með fögur fyrirheit. Þolinmæðin er nefnilega á þrotum.
Hausatalningar | Breytt s.d. kl. 14:44 | Slóð | Facebook
24.11.2008 | 12:13
Silfur haustsins
Ég hef aðeins fylgst með Silfri Egils í haust. Finnst þátturinn hafa tekið nokkrum framförum, þar sem minna virðist vera lagt upp úr því að egna saman andstæðum pólum í pólítískt hanaat. Egill er þó samur við sig hvað kynjavíddina varðar, enda innan við þriðjungur viðmælenda haustsins konur.
Hér má sjá hausatalningar undanfarinna 7 þátta:
Alls komu 14 konur og 37 karlar í þáttinn á tímabilinu. Þann 2. nóvember gleymdi ég að telja - og vonandi var hlutfallið jafnara þar.
Ég fer ekki ofanaf þeirri skoðun minni að Egill, sem vinnur hjá sjónvarpi allra landsmanna, eigi að endurspegla viðhorf þjóðarinnar allrar.
20.8.2007 | 11:12
Forvitnilegt
Mikið verður fróðlegt að sjá kynjasamsetningu stjórnenda og leikara í þessum þáttum - sér í lagi í kjölfar þessarar færslu hér. Mætti segja mér að karlar yrðu þar í meirihluta...
|
Innlend dagskrárgerð efld |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
20.5.2007 | 17:15
Að lokum Egill Helgason
Þá er síðasta Silfri vetrarins lokið. Í þættinum voru 2 konur og 8 karlar. Nú þegar Egill er kominn í sumarfrí er fróðlegt að skoða tölfræði hausatalninganna:
Á myndinni hér að ofan má sjá að einu sinni voru jafnmargar konur og karlar. Konur voru aldrei fleiri en karlar. Einu sinni voru bara karlar. Oftast voru karlar í miklum meirihluta, þó með einhverjum konum. Alls voru 71,4% viðmælenda Egils karlar og 28,6% konur. Að jafnaði talaði Egill við 5,5 karla og 2,2 konur. Þetta er kyn- og kerfisbundin skekkja.
Mögulegar orsakir:
- Konur hafa ekki vit á stjórnmálum.
- Konur hafa ekki áhuga á stjórnmálum.
- Konur vilja/þora ekki koma í umræðuþætti.
- Egill hefur ekki vit á konum og því sem þær hafa fram að færa í stjórnmálum.
- Egill hefur ekki áhuga á konum og því sem þær hafa fram að færa í stjórnmálum.
- Egill vill/þorir ekki að fá konur í umræðuþáttinn.
Ég geri ráð fyrir að fólk hafi ólíkar skoðanir, en þetta er verðugt umhugsunarefni. Best væri ef Egill Helgason velti þessum hlutum gaumgæfilega fyrir sér í sumarfríinu, því batnandi manni er jú best að lifa!
Hausatalningar | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook
13.5.2007 | 21:30
Fullt af fólki hjá Agli
9 karlar - 3 konur.
Konum fækkar á þingi - 20 konur og 43 karlar, sem er lægsta hlutfall kvenna á Norðurlöndunum.
Nú er spennan í hámarki, enda alls óvíst hvaða fólk mun stjórna landinu næstu 4 árin. Bendi af því tilefni á nýja skoðanakönnun hér til hliðar.
Hausatalningar | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook
7.5.2007 | 11:40
Leiðrétting
Ég biðst forláts á að hafa birt rangar tölur í færslu minni í gær - Egill talaði við 3 konur og 6 karla.
6.5.2007 | 20:15
Hlutföll dagsins
Egill Helgason hélt uppteknum hætti í dag, talaði við 2 konur og 5 karla.
29.4.2007 | 20:17
Jafnrétti í reynd?
Niðurstöður Fréttablaðsins sem birtar voru í dag benda til þess að þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs yrði eini þingflokkurinn með jafnt hlutfall karla og kvenna:
- Framsóknarflokkurinn: 5 karlar og 1 kona.
- Sjálftæðisflokkurinn: 17 karlar og 10 konur.
- Frjálslyndi flokkurinn: 2 karlar og 1 kona.
- Samfylkingin: 10 karlar og 5 konur.
- Vinstrihreyfingin grænt framboð: 6 karlar og 6 konur.
Eftir Alþingiskosningar 12. maí 2007 yrðu 40 karlar og 23 konur á þingi. 63,5% karlar og 36,5% konur. Fléttulistar eru málið. Eini flokkurinn sem hefur innleitt þá er líka málið.
Vinstri græn - allt annað líf!
29.4.2007 | 20:13
Silfrið í dag
Hausatalningar | Breytt s.d. kl. 20:23 | Slóð | Facebook
22.4.2007 | 17:42
Tölur dagsins
Tvær konur - fjórir karlar.
Mætti sjálf. Ekki eins skelfilegt og síðast, en slæmt samt. Endalaus frammígrip og erfitt að koma sjónarmiðum að. Svona er lífið.
Eldri færslur
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.3.): 8
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 264
- Frá upphafi: 1496996
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 184
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


