6.8.2007 | 17:11
Að Harry Potter loknum
Þá er ég búin með Harry. Dálítið skrýtið að eiga ekkert eftir þar. Skemmtilegar bækur sem hafa gefið lífinu lit með reglulegu millibili undanfarin ár. Segi svo sem ekki að endalokin hafi komið mikið á óvart en engu að síður gott að vita hver þau eru.
Eitt sem ég velti fyrir mér. Ætli það hafi verið meðvituð ákvörðun hjá J.K. Rowling að hafa Harry Potter strák, eða ætli hann hafi verið strákur þegar hugmyndin fæddist? -Það er athyglisvert að spá svolítið í hvoru fyrir sig.
Hafi Rowling þurft að gera upp við sig hvort bækurnar ættu að fjalla um galdrastelpu eða galdrastrák var það eflaust klókt að velja strákinn. Þó ég geti ekki fullyrt um það, er óneitanlega líklegra að karlkyns hetja selji betur en kvenkyns. Þó tel ég líklegra að Harry hafi fæðst sem strákur í hausnum á Rowling. Samfélagið hefur kennt okkur að hetjur eru karlkyns og því er erfitt - jafnvel fyrir jafnsnjallar konur og Rowling - að láta sér detta kvenkynsofurhetjur í hug.
Eldri færslur
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.2.): 74
- Sl. sólarhring: 89
- Sl. viku: 450
- Frá upphafi: 1495724
Annað
- Innlit í dag: 52
- Innlit sl. viku: 288
- Gestir í dag: 52
- IP-tölur í dag: 48
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


Athugasemdir
Var bara ekki alltaf meiningin að bækurnar yrðu fleiri en ein?
Högni Jóhann Sigurjónsson, 6.8.2007 kl. 22:27
"Samfélagið hefur kennt okkur að hetjur eru karlkyns .."
Þú ert nú svolítið sæt stundum í einfeldnini þegar þú sérð ekki hringavitleysuna.
Af hverju ætti Samfélagið að hafa þurft að kenna okkur það ?
Fransman (IP-tala skráð) 7.8.2007 kl. 09:50
Já, talandi um einfeldni Fransman. Það er ekkert sérstaklega flókið að sjá áhrif samfélagsins á hugsanir okkar og skoðanir. Nema fyrir suma kannski...
Einfeldni mín gerir það aftur á móti að verkum að ég skil ekki athugasemd Högna. Það eru komnar út 7 bækur um Harry Potter.
Sóley Tómasdóttir, 7.8.2007 kl. 10:35
Með fullri virðingu fyrir þér og feminisma (sem ég aðhyllist reyndar sjálf upp að vissu marki), mega þetta ekki bara vera vinsælar barnabækur í friði? Þarf að skoða allt út frá kyni?
Little Miss Lost, 7.8.2007 kl. 11:37
Jú, þær mega það svo sannarlega. Ég hef samt sem áður gaman af því að skoða sem flest út frá femínísku sjónarhorni. Er það ekki allt í lagi bara líka?
Sóley Tómasdóttir, 7.8.2007 kl. 12:05
Að sjálfsögðu. Væri líklega lítið gaman ef allir hugsuðu eins
Little Miss Lost, 7.8.2007 kl. 12:46
Sæl Sóley. Pistillinn þinn hljómar svolítið eins og þú sért að finna að því að rithöfundur skrifar um dreng en ekki stúlku. Ég þykist þó vita að það er ekki meining þín heldur ert þú að velta því fyrir þér hvað veldur því að persóna skapast, í höfði rithöfundar, af öðru kyninu frekar en hinu.
Þetta er hins vegar athyglisverð pæling. Hefði Harry Potter orðið jafnvinsæll ef bækurnar hefðu verið skrifaðar um Harriette Potter en verið að öðru leiti alveg eins? Ég er reyndar ekki alveg viss um það. Hluti af viðhorfum okkar, og þar á meðal barnanna okkar, er kynbundinn ómeðvitað þannig að erfitt er að fullyrða um áhrif þessa. En það er skemmtilegt að velta þessu fyrir sér.
Hreiðar Eiríksson, 7.8.2007 kl. 12:56
tók mér annars það bessaleyfi að blogga um færsluna þína. Vona að það sé í góðu.
Little Miss Lost, 7.8.2007 kl. 13:28
Æ....úff... En þessi pæling hjá þér þarf svo sem ekkert að koma á óvart. Það hlýtur að vera svakalega erfitt að vera þú.
Gunnar Th. Gunnarsson, 8.8.2007 kl. 09:42
Hafðu ekki áhyggjur af mér Gunnar. Skil bara ekki sjálfseyðingarhvötina hjá þér að vera alltaf að lesa þessi hræðilegu skrif mín. -Og langar ekki í útskýringu á henni...
Sóley Tómasdóttir, 8.8.2007 kl. 10:17
Jú Sóley það kemur fram hjá Hreiðari það sem ég vildi sagt hafa, ég einfaldlega týndi þessum pistli kann ekki ennþá að halda utanum þær síður sem ég er að trana mér inná.
Ég er ekkert endilega viss um Baldur að við séum öll að rífast þó svo að við séum að tjá okkur og þó jú sum okkar, kanski tekst okkur bara svona misjafnlega að koma fyrir okkur orði og þannig myndast stundum misskilningur.
Ég reyndi að fylgjast með umræðunni sem var hér í gangi þar sem Sóley talaði um karlanefnd og kom inná að kynin ættu að vinna saman að jafnréttismálum en ég er bara svo einfaldur að ég skildi hvorki upp né niður hún fór gjörsamlega útum þúfur og það strax, ég er að öllu jöfnu ekki sáttur við hvernig femínistar þurfa endalaust að misskilja allt sem sagt er og skrifað bara til þess eins að misskilja það, en mér finnst nú allt í lagi að minnast á sumt og líka allt í lagi að tjáskipti séu höfð en óþarfi að fara útí persónuleg enkamál eða það sem er verra skítkast.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 10.8.2007 kl. 23:14