Leita í fréttum mbl.is
Embla

Tvíeggjað

Er konan ekki einmitt að sjá um málið fyrir þá með því að skipa nefndina?

Annars er rétt að benda á að stjórnendur málaflokkanna þriggja sem nefndinni er ætlað að beina sjónum sínum að er stýrt af körlum og oft koma þar fram mjög karllæg sjónarmið. Þó konur séu kennarar, hjúkrunarfræðingar og uppalendur í ríkari mæli en karlar, þá eru karlar í miklum meirihluta skólastjórnenda og æðstu ráðamanna menntastofnana, lækna og æðstu ráðamanna heilbrigðisstofnana, lögfræðinga og dómara.

Viðhorfin í málaflokkunum eru oftar en ekki karllæg og miða að því að viðhalda kynjakerfinu. Í skólum er varla tekið á staðalmyndum og áhrifum þeirra, í heilbrigðisgeiranum er lögð ríkari áhersla á karllæga sjúkdóma en þá kvenlægu (m.a.s. eru lyf við karllægum sjúkdómum meira niðurgreidd en lyf við kvenlægum sjúkdómum skv. skýrslum Tryggingastofnunar) og dómskerfið er enn fast í gamalli hugmyndafræði um að uppeldi og umönnun eigi að vera í höndum kvenna.

Ég er ekki að gera lítið úr þeirri staðreynd að það hallar á karla á sumum sviðum. Ég efast þó um að það skili miklu að karlar einir vinni að sínum hagsmunum og konur einar að sínum (hvað þá að konur á borð við Karitu skikki karla til að hafa áhuga á málinu). Við þurfum öll að standa saman og átta okkur á að jafnrétti kynjanna er hagsmunamál fyrir alla - konur og kalla!


mbl.is Karlar ræði „karlréttindamál“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Viðar Eggertsson

Hlakka til að heyra svar þitt Sóley við spurningum skh.

Var líka að velta fyrir mér orðunum "Ég efast þó um að það skili miklu að karlar einir vinni að sínum hagsmunum og konur einar að sínum..."

Hvað með feministahreyfinguna? Eru þar ekki eingöngu eða að mestu konur innanborðs? Getur varla skilað miklu samkvæmt því sem þú skrifar.

Að maður tali ekki um Karlahópinn svonefnda, er hann ekki bara skipaður körlum?! Getur þá varla verið heldur gott mál og orðin spurning um brot á jafnréttislögum (lesist: kynjajafnréttislögum). Þar hallar verulega á konur... segi nú bara ekki annað.

Tveir aðskildir hópar skiptir eftir kynferði....

Viðar Eggertsson, 7.8.2007 kl. 20:00

2 Smámynd: Sóley Tómasdóttir

Ég ætla hvorki að svara skh né Viðari. Finnst báðir ómálefnalegir.

Skh telur sig þess umkominn að koma hér inn til að spyrja mig út úr skoðunum mínum. Til þess eins að fjargviðrast. Gæti ekki verið meira sama.

Viðar hefur svo miklar áhyggjur af því að barátta mín gæti hugsanlega komið niður á hagsmunabaráttu homma að hann leggur sig fram um að gera lítið úr kynjakerfi samfélagsins. Hefur greinilega enga þekkingu á starfsemi eða starfsháttum femínistafélagsins en að sjálfsögðu tilbúinn að gera lítið úr því.

Þetta er í síðasta skipti sem ég æsi mig yfir athugsemdum þeirra. Komi fleiri ómálefnalegar athugasemdir frá þeim mun ég loka fyrir aðgang þeirra að kerfinu.

Sóley Tómasdóttir, 7.8.2007 kl. 20:15

3 Smámynd: Viðar Eggertsson

Sóley hefur í frammi undarlegan málflutning.

Eit get ég leiðrétt hjá Sóleyju, enda er ég sjálfur bestur til að tjá hvar áhyggjur mínar liggja. ég hef áhyggjur af því að kynjajafnréttisáhugakonur sjái jafnréttismál í svo þröngu ljósi að það getur skert réttindi annra sem beittir eru misrétti.

Þess eru dæmi með svokölluðum tækjum sem notuð eru til að jafna rétt karla og kvenna. Þá er fyrst að taka til kærunefndar jafnréttismála sem með úrskurðum sínum getur skaðað hópa fólks sem er viðurkennt að á undir högg að sækja. Vissulega eru hommar þar á meðal, sem og fatlaðir, litaðir, fólk sem játar aðra trú en almennt er o.sv. frv.

Það er merkilegt ef feministii vill auka misrétti þessa fólks og tala niður til þeirra sem benda á einstrengingslega afstöðu feminista sem getur valdið öðrum skaða.

Ef Sóley vill viðhafa slíkan málflutning þá er hún að skipa sér í flokk með hinum vestræna, hvíta borgaralega karlmanni sem ég hélt hún væri að reyna að koma vitinu fyrir.

Hótanir hennar og málflutningur minnir óneitanlega á skrif annars hugsjónamanns sem nefnir sig Jón Val. Hann á það sameiginlegt með Sóleyju að hóta að loka á þá sem eru honum ekki sammála. Hann einnig, kýs að kalla málflutning þeirra ómálefnalegan.

Merkilegt, ha?

En ég hef þá trú að einn daginn muni samfélag okkar viðurkenna að jafnrétti þarf fyrir alla. Að það sé ekki samfélag sem við viljum, sem býður sumum þegnum sínum mannréttindi og öðrum ekki. Að sjálfsagt sé að jafnrétti eins hóps eigi að skaða annan.

Þangað til mun ég áskila mér allan rétt til að vekja athygli á tvískinnungi, hvort sem hann kemur frá þeim sem sveipa sig feminisma eða öðrum hugsjónum. Feminismi er ekki töfraorð fyrir jafnrétti. Það er að berjast fyrir réttindum kvenna sem hafa verið misrétti beittar. En það getur varla verið markmiðið að samsama sig þeim sem hefur kúgað og kúga síðan aðra með vopnunum sem áður bitu á þeim.

Hverskonar samfélagshugsjón er það?

Viðar Eggertsson, 7.8.2007 kl. 21:07

4 identicon

SKH - Karita Bekkemellem er kona í valdastöðu, kona sem getur kallað saman karla úr ólíkum áttum í samfélaginu og BORGAÐ þeim fyrir eða fengið þeim það verkefni að taka á þessum málefnum. Held það setji hana í aðra stöðu heldur en flestar aðrar konur sem vinna að jafnréttismálum.

Viðar - hvað Femínistafélagið varðar, þá eru þar töluvert fleiri konur en karlar. Hins vegar hefðirðu nú bara þurft að horfa á kvöldfréttir Stöðvar 2 í gær til að sjá að það eru konur í Karlahópnum og ég get borið vitni um það að það starfa karlar í fleiri hópum en karlahópnum. Karlahópurinn er hins vegar sá hópur sem er leiddur af körlum og vinnur markvisst að málefnum sem snúa beint að þeim. Sama gerði karlanefnd Jafnréttisráðs, sem starfaði fram að setningu núgildandi laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla - sem er alveg rétt hjá þér að eru eingöngu kynjajafnréttislög. Heitið sem við köllum þau í daglegu tali er nefnilega fjarri því að lýsa því til hvers lögin eru. Þau fjalla ekki eingöngu um jafnan rétt kvenna og karla, heldur um það hvernig þurfi að jafna stöðu þeirra í samfélaginu. Svo er það nú þannig, að sama hvort fólk er fatlað, litað, sam- gagn- eða tvíkynhneigt, þá er það alltaf annað hvort, karl eða kona. Þess vegna þarf að vinna að réttindum kynjanna, ekki eingöngu að réttindum minnihlutahópa.

En það á nú við um mörg önnur hagsmunasamtök, að í þeim eru einna helst þeir sem hafa hagsmuna að gæta. Ég man eftir grein sem birtist í Morgunblaðinu í vetur, eftir móður samkynhneigðrar konu. Hún hafði gengið í Samtökin 78 stuttu eftir að dóttir hennar sagði fjölskyldunni frá kynhneigð sinni, til þess að styðja hana. Henni varð svo um það hversu fámenn samtökin eru að henni fannst ástæða til að skrifa um það í blöðin. S78 eru nefnilega ekki bara fyrir homma og lesbíur, þó það sé fólkið sem skráir sig helst, heldur fyrir allt það fólk sem telur réttindi fólks ekki eiga að markast af kynhneigð - eða þannig skil ég það.

Silja (IP-tala skráð) 7.8.2007 kl. 21:09

5 Smámynd: Sóley Tómasdóttir

Viðar. Sitt sýnist hverjum. Munurinn á okkur tveimur er að ég tel að barátta eins minnihlutahóps hjálpi öðurm, þú lítur á hana sem ógn. Það hvarflar ekki að mér að kúga einn né neinn. Ég er femínisti vegna þess að kynjajafnrétti er mér mjög hugleikið. Önnur mannréttindi skipta mig líka máli, þó ég skrifi miklu sjaldnar um þau. En það hefur þú kosið að skilja ekki.

Hef því ákveðið að eiga ekki í frekari orðaskiptum við þig. Vertu sæll.

Sóley Tómasdóttir, 7.8.2007 kl. 21:14

6 identicon

Og Viðar, hvernig færðu út að Sóley eða aðrir sem berjast fyrir jafnrétti kynjanna vilji auka á misrétti gegn öðrum hópum? Sóley bendir á í þessari færslu að það sé þörf á að kynin vinni saman, ekki að þau vinni að sínum málefnum hvort í sínu horni. Væri ekki einmitt ráð að vinna saman að jafnrétti kynjanna? Það er t.d. starfandi hinsegin hópur í Femínistafélaginu, þér væri örugglega vel tekið ef þú hefðir áhuga á að leggja þitt af mörkum. Ekki krefjast þess að aðrir komi á móts við þig ef þú ert ekki tilbúinn að vinna með þeim!

Silja (IP-tala skráð) 7.8.2007 kl. 21:18

7 Smámynd: Hreiðar Eiríksson

Ég tel að margt í okkar þjóðfélagi tengist jafnréttismálum og gagnist þannig báðum kynjum þótt það birtist í fyrstu í búningi kvenna- eða karlabaráttu.   Þannig tel ég að fæðingarorlof karla hafi sýnt sig í að vera stór réttarbót fyrir karla en einnig valdið stórframförum fyrir konur á vinnumarkaði.  Á sama hátt er ég sannfærður um að hagsæld og framþróun á Íslandi er að stórum hluta vegna þess hver kvenfrelsishreyfingar hafa náð góðum árangri.

 Af þessum sökum tel ég að það sé fagnaðarefni fyrir bæði kynin að þau skuli bæði hyggja að sínum réttindamálum því að það skilar meira jafnrétti og þar með farsælla og friðsamlegra þjóðfélagi.

Hreiðar Eiríksson, 7.8.2007 kl. 23:46

8 Smámynd: Andrés.si

Æi Sóley hver nennir að lesa eftyr þér.  

http://gisligislason.blog.is/blog/gisligislason/entry/267583/

Andrés.si, 8.8.2007 kl. 01:06

9 identicon

"Ég er femínisti vegna þess að kynjajafnrétti er mér mjög hugleikið."

Það sem þú gerir, bendir fyrst og fremst ti þess að aukin kvennaréttindi séu þér ofarlega ií huga, og þá jafnvel á kostnað réttinda karla.

Þetta innlegg þitt er einfaldast að skilja sem einhverjar hnýtur í ráðherra jafnréttismála í Noregi, fyrir að setja á fót nefnd til að koma réttindum karla upp á sama level og réttindum kvenna.

Sóley: hvernig er hægt að skilja þetta innlegg þitt öðruvísu en að þú sért hreinlega á móti jafnrétti ?

Fransman (IP-tala skráð) 8.8.2007 kl. 08:29

10 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þú gengur fram af mér Sóley í pistlum þínum, en þó enn meir í athugasemdakerfinu. Ég velti því fyrir mér hvort þú viljir helst að feministar séu lokuð, einangruð kvennagrúbba svipað og últra vinstrimenn sem þrífast best í litlum leshringjum, sem kryfja Marx, Engels og Lenín og líta á alla sem óvini sína, sérstaklega aðra vinstrimenn, endurskoðunarsinna sem eyðileggja hina einu sönnu hugsjón.

Gunnar Th. Gunnarsson, 8.8.2007 kl. 10:00

11 Smámynd: Sóley Tómasdóttir

Fransman og Gunnar. Það er enginn að biðja ykkur að lesa skrif mín - og hvað þá að túlka þau. Þau sem vilja og skilja vita vel út á hvað þau ganga. Útúrsnúningar ykkar gagnast lítið í þeim efnum.

Sóley Tómasdóttir, 8.8.2007 kl. 10:14

12 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Ég dáist að þér Sóley að nenna að standa í þessu og að geta það.  Makalaust hvað þú þarft að þola af þessu  mönnum sem svara þér.  Ég þakka þér fyrir að berjast fyrir okkur sem ekki erum eins duglegar.  Það er greinilega langt í land.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 8.8.2007 kl. 10:20

13 Smámynd: Sóley Tómasdóttir

Takk fyrir það Þórdís. Gott að fá innlegg frá þeim sem vilja og skilja líka...

Sóley Tómasdóttir, 8.8.2007 kl. 10:25

14 Smámynd: Einar Þór Strand

Sóley

Mikið rosalega eru þjáð af því að þú ert kona.  Ég held að mikill meirihluti Íslendinga horfi ekki á kyn fólks þegar þeir mynda sér skoðun á því heldur á hvort einstaklingurinn hafi til að bera mannvit sem felst í umburðarlyndi og taka ábyrð á eigin lífi.  Það sem þú ert alltaf að hafa áhyggur af er að vegna þess að þú sért kona sé litið á þig sem "undimálsmanneskju" og meðan þú talar þannig þá mun þér líða þannig og það sem verra er það er meiri hætta á að fólk lít þannig á þig. 

Hættum núna þessu kvk/kk tali og förum að tala um jafnrétti í stærra samhengi tildæmis um hámarks launamun innan fyrirtækja og í þjóðfélagninu, og að skólakerfið fari að reyna að kenna gangrýna hugsun þannig að skólarnir hætti að útskrifa fólk sem kann eingöngu kenningar og trúir á þær af næstum ofstæki og farið að útskrifa fólk sem veit að það eru skoðanir eru og eiga að vera skiptar um alla hluti og við eigum að taka tillit til allra hópa eins mikið og hægt er.

Sá sem heitir það sem konur vilja alls ekki vera.

Einar Þór Strand, 8.8.2007 kl. 11:53

15 Smámynd: Sóley Tómasdóttir

Einar. Ég er ekki þjáð. Ég er að vinna að hugsjónum mínum. Ég er engin undirmálsmanneskja, síður en svo. Mikil kraftaverkakona sem hefur afrekað margt og á miklu meira eftir. Ég ætla að halda áfram á þessari braut.

Ef þú hefur áhyggjur af öðrum hlutum, þá endilega einbeittu þér að þeim. Það vantar alltaf hugsjónafólk í baráttu hinna ýmsu hópa. Held það væri nú betra að beina orku þinni þangað í stað þess að hún fari öll í að býsnast yfir mínum hugsjónum. En ég ætla ekki að ráðskast með þig og bið þig vinsamlegast um að hætta að ráðskast með mig í staðinn.

Sóley Tómasdóttir, 8.8.2007 kl. 13:30

16 Smámynd: Jóhanna Ragnarsdóttir

Alveg finnst mér frábært að þú skulir halda baráttunni áfram, ekki veitir af, annars segir Þórsís Bára allt sem segja þarf, ég er ykkur báðum sammála í megin atriðum . Vonandi eigum við eftir að njóta skirfa þinna hérna áfram.

Jóhanna Ragnars 

Jóhanna Ragnarsdóttir, 8.8.2007 kl. 14:24

17 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það sem er eflaust sárt fyrir þig Sóley, þar sem þú meinar 100% vel, er hin mikla andstaða við sjónarmið þín, eða réttara sagt nálgun þín á jafnréttisbaráttunni. Ég persónulega þekki engan sem er á móti jafnrétti og réttlæti, svo markmið þín hljóta að vera göfug að flestra mati.

Þér fnnst þetta endalaus barátta og slagsmál við vindmillur. Ég þekki þá tilfinningu, reyndar í allt öðrum málaflokki. Öll viljum við ná árangri og þú telur þig hafa afrekað margt, sem er gott. En hver eru afrekin? Athygli fjölmiðla á þér? Vinsældir blogsins? Spyr sem ekki veit og þar með kem ég upp um fáfræði mína um starf feminista, en þú ert eflaust búin að uppgötva það nú þegar. 

Finnst þér ekkert óþægilegt þegar fólk upplifir skoðanir þínar eins og undirliggjandi sé karlhatur? Ég er alls ekki að segja að þú sért haldin karlhatri, einungis að segja að sumir upplifa þig þannig. En það eru ekki síður konur sem eru í andstöðu við nálgun þína í jafnréttisbaráttunni og það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir þig. Ég myndi pæla í öðruvísi strategíu í þínum sporum. 

En ég er reyndar algjörlega ósammála þér í sumum atriðum, eins og jákvæðri mismunun. Það hlýtur að vera ömurlegt sem stjórnandi á vinnustað að verða að ráða t.d. karlkyn úr hópi jafnhæfra umsækjenda á grundvelli menntunar, starfsreynslu o.þ.h. , þegar persónulegt mat stjórnandans er að einstaklingur af hinu kyninu myndi hæfa starfsumhverfinu og vinnufélögunum betur.

Gunnar Th. Gunnarsson, 8.8.2007 kl. 15:14

18 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Við getum haft mismunandi skoðanir á ágæti karlanefndar (sem mér finnst reyndar alls ekki vera slæm hugmynd), en það er óþarfi að væna annað fólk um karlahatur eða vanmáttarkennd bara af því að það er á öndverðri skoðun.

En hvernig í veröldinni á kynjajafnrétti að geta skaðað aðra hópa, eins og Viðar heldur fram? Er einhver sem getur svarað því?

Svala Jónsdóttir, 8.8.2007 kl. 20:52

Höfundur

Sóley Tómasdóttir
Sóley Tómasdóttir

Róttækur femínisti sem ætlar að bjarga heiminum. Ritari Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, ráðskona í Femínistafélagi Íslands og gegnir jafnframt ýmsum hlutverkum í borgarstjórn Reykjavíkur - allt eftir því hvernig vindar blása. 

Mars 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband