Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
30.1.2009 | 10:43
Og seinna börnin segja...
Birtist í Morgunblaðinu 29.janúar 2009
eftir Halldór Baldursson
Kona
Þegar allt hefur verið sagt
þegar vandamál heimsin eru
vegin metin og útkljáð
þegar augu hafa mæst
og hendur verið þrýstar
í alvöru augnabliksins
-kemur alltaf einhver kona
að taka af borðinu
sópa gólfið og opna gluggana
til að hleypa vindlareyknum út.
Það bregst ekki.
Ingibjörg Haraldsdóttir
27.1.2009 | 12:17
Grasrótarsamtök og stjórnmálaflokkar
Neyðarstjórn kvenna eru grasrótarsamtök sem stofnuð voru af mér, og nokkrum vinkonum mínum í haust, þar sem við töldum brýnt að koma kynjasjónarmiðum að þegar kreppan skall á. Neyðarstjórnin samanstendur nú af 2.200 konum úr ýmsum áttum sem margar eru virkar í stjórnmálaflokkum.
Ég hef verið virk í grasrótarsamtökum, sér í lagi þeim sem tengst hafa femínisma frá unga aldri. Ég hef þá staðföstu hugsjón, að eigi fólk að geta notið lífsins í samfélaginu, verði jafnrétti kynjanna að nást á öllum sviðum.
Fyrir nokkrum árum gekk ég til liðs við Vinstrihreyfinguna grænt framboð, þar sem ég taldi að hugsjónum mínum væri þar best borgið. Nú gegni ég þar mikilvægum trúnaðarstörfum, er ritari flokksins og varaborgarfulltrúi og hef sem slík unnið af krafti við að halda femínískum áherslum flokksins á lofti og náð talsverðum árangri.
Þrátt fyrir þátttöku mína í flokksstarfi Vinstri grænna hef ég ekki slegið slöku við í starfi með grasrótarsamtökum, enda tel ég gríðarlega mikilvægt að stjórnmálafólk sé í góðum tengslum við grasrótina og samfélagið og taki þátt í aðgerðum á öllum sviðum til að bæta samfélagið.
Eðli grasrótarsamtaka, sem jafnframt er þeirra helsti sjarmi, er að þau geta þróast og þroskast óheflað, oft með óvæntum hætti. Nú, þegar framboð til Alþingis hefur verið tilkynnt undir merkjum Neyðarstjórnar kvenna verður ekki bæði haldið og sleppt.
Ég tel enn að kröftum mínum sé best varið í þágu Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og segi því skilið við vinkonur mínar og samherja á vettvangi Neyðarstjórnarinnar. Ég óska þeim að sjálfsögðu alls hins besta eins og öðrum sem vilja hafa áhrif á jafnrétti kynjanna og beita sér á vettvangi stjórnmála.
25.1.2009 | 17:13
Spennandi tímar
Nú er allt á suðupunkti. Formenn ríkisstjórnarflokkanna virðast ráðvilltari en hin óraunverulega þjóð, eru steinhissa á afsögn viðskiptaráðherra sem þau telja ómaklega, enda hafi hann staðið sig jafnfrábærlega og þau.
Á meðan heldur búsáhaldabyltingin áfram. Henni lýkur ekki fyrr en ríkisstjórnin hefur sagt af sér og boðað hefur verið til kosninga. Vonandi sem fyrst.
|
Geir: Má ekki missa dampinn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
23.1.2009 | 20:04
Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs
Á stjórnarfundi í kvöld ákváðum við að boða til landsfundar eins fljótt og lög flokksins leyfa, þann 20.-22. mars. Búið er að kjósa miðlæga kosningastjórn og vinnan komin á fullt.
Ég hlakka til að takast á við þau viðfangsefni sem framundan eru. Málefnavinna, landsfundur og kosningabarátta, að ég tali nú ekki um mögulega þátttöku flokksins í ríkisstjórn. Vorið 2009 verður svo sannarlega öðruvísi en nokkurn hefði órað fyrir.
|
Landsfundur VG í mars |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
22.1.2009 | 19:09
Stórt skref fyrir Samfylkinguna, lítið skref fyrir þjóðina
Þessi ummæli Ingibjargar Sólrúnar vekja von. Það var vissulega kjarkað af Samfylkingarfélaginu í Reykjavík að álykta um stjórnarslit og kosningar og mikilvægt að nú verði farið að ráðum félagsins.
Kosningar eru á næsta leiti. Byltingunni fer að ljúka.
|
Ingibjörg vill kosningar í vor |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
22.1.2009 | 11:52
Kalt vatn eða táragas?
Ég skil ekki af hverju lögreglan beitir piparúða og táragasi. Af hverju er ekki bara smúlað köldu vatni yfir fólkið ef ástæða þykir til að dreifa úr hópnum? -Það er sársaukalaus, en árangursrík aðferð.
Gott hjá Herði annars að benda á leiðir fyrir okkur mótmælendur til að koma í veg fyrir ofbeldi af hálfu sammótmælenda okkar.
|
„Við viljum ekki ofbeldi“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
22.1.2009 | 11:41
Ofbeldi í boði ríkisstjórnarinnar
Undanfarna daga hefur talsvert skort upp á að fjölmiðlar dragi fram heildarsamhengi hlutanna. Mikið er fjallað um einstaka atburði, mótmælendum hefur verið fylgt eftir og átök einstaklinga eða afmarkaðra hópa við lögreglu tíunduð. Það er sjálfsagt og eðlilegt - en stóra myndin er þó sú sem mestu máli skiptir.
Alls kyns vondar og óæskilegar tilfinningar hafa verið að hreiðra um sig og magnast í brjóstum fólks svo mánuðum skiptir. Krafa samfélagsins um að þeir axli ábyrgð sem eigi hefur verið hunsuð í næstum fjóra mánuði. Mótmæli hafa verið haldin með reglubundnum hætti og er nú svo komið að í stað vikulegra útifunda eru þeir orðnir daglegir, og litlu munar að þeir renni saman í einn semfelldan fund.
Mótmæli á Íslandi hafa aldrei verið tíðari, stærri eða fjölmennari. Í ástandi sem þessu verður ekki hjá því komist að eitthvað fari úr böndunum. Fæst okkar vilja ofbeldi. Hvorki af hálfu mótmælenda né lögreglu. Ríkisstjórnin er sú eina sem getur komið í veg fyrir það. Ofbeldið er á hennar ábyrgð.
|
Táragasi beitt á Austurvelli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
21.1.2009 | 12:38
Samt öll á völlinn!
Fundarfall á Alþingi er snilldartilraun til að draga úr mætti þjóðarinnar. Veldur efasemdum um tilgang þess að mæta í boðuð mótmæli á Austurvelli.
Efumst ekki. Sýnum styrk og úthald á lokasprettinum. Kærum okkur kollótt um dagbækur ráðafólks. Mætum á Austurvöll í hádeginu!
|
Þingfundur fellur niður |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
21.1.2009 | 11:26
Kynbundin áhrif kreppunnar
Frétt á mbl.is um að atvinnuleysi í Bretlandi aukist nú meira meðal kvenna en karla kemur ekki á óvart. Kreppur heimsins hafa alltaf komið með ólíkum hætti niður á kynjunum og ekkert bendir til þess að svo verði öðruvísi farið hér og nú.
Hér á Íslandi hófst kreppan með miklum samdrætti í byggingariðnaði og um svipað leyti féllu bankarnir. Hrunið sjálft bitnaði mjög hart á körlum eins og kemur skýrt fram í tölum Vinnumálastofnunar. Enn eru mun fleiri karlar en konur á atvinnuleysisskrá og er líklegt að það verði eitthvað áfram.
Afleiðingar hrunsins eru þó ekki komnar í ljós. Framundan er stórkostlegur niðurskurður hjá hinu opinbera, auk þess sem verslun og þjónusta mun dragast saman. Það kemur til með að bitna á konum.
Mikið má læra af síðasta atvinnuleysisskeiði, á miðjum 10. áratug síðustu aldar - sem þó var ekki í neinni líkingu við það sem nú er að gerast. Þá jókst atvinnuleysið mest meðal karla á landsbyggðininni í upphafi, enda hafði aflabrestur mikið að segja. Í framhaldinu misstu konur sín afleiddu störf og áhrifin færðust einnig inn í þéttbýlið.
Reynsla okkar frá síðasta skeiði, sem og annarra af sambærilegum áföllum og nú blasir við eru þau að atvinnuleysi verði meira meðal kvenna og komi til með að standa lengur yfir meðal kvenna, jafnvel þótt að í upphafi hafi vandinn verið meiri meðal karla. -Og kannski einmitt þess vegna.
Það er hættulegt þegar stjórnvöld hugsa bara um stað og stund. Læra ekki af reynslunni og spá ekki í framtíðina. Að ég tali ekki um þegar stjórnvöld eru kynblind með öllu.
Ég er ansi hrædd um að núverandi stjórnvöld (sem ég trúi reyndar ekki að komi til með að sitja lengur en einhverja klukkutíma í viðbót) komi til með að gera sömu mistök og síðast - og þar áður og þar áður og þar áður. Þau mistök að taka ekki tillit til þess hvernig atvinnuleysið bitnar með ólíkum hætti á kynjunum - og bregðast við því.
Þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur boðað til að halda uppi atvinnustigi á landinu eru þríþættar. Aukinn þorskkvóti, álversuppbygging og samgöngugerð. Hvaða áhrif kemur þetta til með að hafa á atvinnumöguleika kvenna? -Mjög litla, því miður.
---
Ísland þarf nýja ríkisstjórn. Ríkisstjórn sem tekur til, þrífur og loftræstir. Ríkisstjórn sem er tilbúin til að læra af reynslunni, hlusta á fólkið og horfa til framtíðar. Ríkisstjórn sem áttar sig á að jafnrétti kynjanna hefur ekki verið náð. Ríkisstjórn sem er til í að gera eitthvað í því!
|
Atvinnuleysi eykst meira meðal kvenna en karla |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
20.1.2009 | 16:35
Af gefnu tilefni
Vögguvísa róttækrar móður
Enn syng ég gamalt stef við þinn sængurstokk í kvöld
er sólin rennur langt að fjallabaki
um þá sem sitja sléttir og slóttugir við völd
og sleppa aldrei neinu fantataki.
Morðingjar heimsins og myrkraverkaher
munu reyna að draga úr þér kjarkinn
en gleymdu því samt aldrei að meira en maklegt er
að á mörgum þeirra höggvist sundur barkinn.
Þeir eiga glæstar hallir, þeir eiga lúxusbíl
þeir eiga meir en nóg til hnífs og skeiðar.
Þeir kæfa okkur í táragasi og kalla okkur skríl
þeir koma okkar vandræðum til leiðar.
Morðingjar heimsins og myrkraverkaher
munu eflaust pína þig til dauða
en gleymdu því samt aldrei að meira en maklegt er
að úr mörgum þeirra vætli blóðið rauða.
Svo segi ég að lokum fyrst sólin hnigin er
og svefnsins engill strýkur þér um hvarma
að margan góðan drenginn þeir myrtu þar og hér
og margur hlaut að dylja sína harma.
Morðingjar heimsins og myrkraverkaher
myrða okkur líka einhvern veginn
en gleymdu því samt aldrei að meira en maklegt er
að af mörgum þeirra væri skjátan flegin.
Áratugagamall texti eftir Böðvar Guðmundsson - sem á sorglega vel við einmitt í dag!
Eldri færslur
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.3.): 1
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 139
- Frá upphafi: 1496712
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 101
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


